Þeir sem fylgst hafa með þróun bridgetölvuforrita þekkja eflaust Bridge Baron,
en nýjasta útgáfa þess er nýkomin á markaðinn. Bridge Baron hefir fimm sinnum orðið heimsmeistari í keppni þessara forrita, eða oftar en nokkurt annað forrit.
Forritið skiptist í sjö þætti, sem skipulagðir eru í fjóra flokka.
Spilamenskuflokkurinn inniheldur “Spilaðu bridge”, þar sem þú segir á spilin
og spilar síðan sókn eða vörn, eftir því hvað við á. Þú getur notað spil frá sjálfum þér, eða eitthvert af þeim tveimur billjónum spila, sem Bridge baron hefir hannað. Þú situr sjálfur í suður, en tölvan segir og spilar fyrir alla hina. Hægt er að velja um sjö útgáfur af spilamensku með því að velja hve langan umhugsunartíma tölvan fær. Því lengur sem hún fær að hugsa, því betur spilar hún. Þeir sem nota Windows geta síðan
spilan á netinu við aðra notendur víðs vegar um heiminn.
Í keppnisþættinum er hægt að spila upp gamlar keppnir líkt og í TOPS og bera síðan árangurinn saman við meistarana. Þá er einnig hægt að spila keppni með félaga
sínum eða tölvunni og tölvan sér um útreikninginn.
Kennsluþátturinn innifelur sagnvenjur og er þá hægt að velja um hinar ýmsu sagnvenjur, sem þú vilt æfa. Í honum eru einnig erfið viðfangsefni, sem hinn frægi
bridgemeistari, Easly Blackwood hefir hannað.
Þá er ótalinn tækjaþátturinn,þar sem þú getur geymt spil, sem þér hafa þótt
erfið og áhugaverð. Í honum er einnig hægt að hanna spil með tilliti til púnkta og
skiptinga, eða ýmissa sagnraða.
Margvíslegar nýjungar eru frá eldri gerðum, s. s. þrjú ný tungumál, ellefu nýjar
sagnvenjur s. s. Ghestem, Checkback Stayman, Landy, Multi-2D, Mini-Multi, Ogust,
Multi-Roman, DONT, Astro, Benjamin 2-Bids og New Minor Forcing. Og margt
fleira.
Skoðum eitt dæmanna, sem Easly Blackwood hefir hannað.
N/A-V
|
|
North
75
10 7 6 4
A K D
10 6 5 2
|
|
West
9 8 4 2
G 8 5
7 4
A K 8 3
|
|
East
6 3
A 9 5 2
6 5 3
D G 9 4
|
|
|
South
A K D G 10
K D
G 10 9 8 2
7
|
|
Sagnirnar eru nokkuð hefðbundnar :
| Norður | Austur | Suður | Vestur |
| Pass | Pass | 1 spaði | Pass |
| 1 grand | Pass | 2 tíglar | Pass |
| 3 tíglar | Pass | 4 spaðar | Allir pass. |
Vestur spilar út laufkóng, fær kall frá félaga og spilar laufás.
Sagnhafi trompar og íhugar möguleikana. Það er ljóst, að hann á nógu marga slagi, vandinn er hins vegar hvernig hægt er að nálgast þá. Glöggir lesendur sjá þó fljótt galdurinn við spilið, þú spilar tígli á ásinn, tekur síðan fjórum sinnum tromp og aðgætir að losa þig við tígulháspilin í borðinu.
Þetta var ekki mjög erfitt, en fjölda annara dæma er að finna, sem gætu
reynst erfiðari.
Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar á Netslóð www.bridgebaron.com/.